Almanak 2027

Almanak 2027

5.000 kr
Fara beint í vöruupplýsingar
Almanak 2027

Almanak 2027

5.000 kr

Listaverkaalmanak Landssamtakanna Þroskahjálpar 2027.

Listamaður ársins er Ingi Hrafn Stefánsson.

Sendingarkostnaður er innifalinn í verðinu.

 

Landssamtökin Þroskahjálp berjast fyrir réttindum og hagsmunum fatlaðs fólks. Á hverju ári er sala almanaksins ein af stærstu fjáröflunum Þroskahjálpar.

Fyrstu mánuðina er almanakið selt með happdrættismiða, og eftir það er almanakið selt eitt og sér.

Á meðal vinninga í happdrættinu eru gjafabréf á upplifanir, hótelgisting, auk fjöldi listaverka, bæði frummyndir og eftirprentanir, eftir marga ástsælustu listamenn þjóðarinnar, þar á meðal þá frábæru listamenn sem eiga verk í almanaki ársins.


Listamaður almanaksins 2027

Í ár kynnum við almanak með listaverkum eftir listamanninn Inga Hrafn Stefánsson

Í ár kynnum við almanak með listaverkum eftir listamanninn Inga Hrafn Stefánsson.

Hallgrímskirkja kemur reglulega fyrir í verkum Inga Hrafns. Hann heimsækir staðinn, ljósmyndar bygginguna og vinnur síðan áfram með form hennar og ásýnd í málverkum sínum. Þannig verður sama kennileitið að ólíkum myndheimum eftir birtu, árstíma og litavali.

Verk Inga Hrafns hafa verið sýnd bæði hér á landi og erlendis. Árið 2026 átti hann meðal annars tvö verk á sýningunni „Smáborg, háborg – Reykjavík í mynd“ á Kjarvalsstöðum.

Landssamtökin Þroskahjálp halda áfram að berjast fyrir sýnileika og tækifærum fatlaðs listafólks. Í almanaki ársins kynnumst við verkum Inga Hrafns og hans sérstaka sjónarhorni á kunnugleg kennileiti og umhverfi.

Þér gæti einnig líkað við